Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Thelma Rún Magnúsdóttir
  • Staður: 730 Reyðarfjörður:*
  • Atvinna: Þvottabjörn & Olís
  • Hjúskaparstaða: Föstu með Heimi

Klukkan

23. mars 2009 klukkan 11:19
Á föstudaginn gerð ég lítið, fór í smá göngu og passaði og svona.. svo bara snemma að sofa því við þurftum að vakna snemma.
Á laugardaginn vaknaði ég svo um 7 og gerði mig til og svona, svo lögðum við af stað um 8, vorum klukkutíma lengur en við reiknuðum með, þvi konan hafði aldrei keyrt þetta áður.. En við vorum komin þangað um 10:30.. Um leið og við vorum komin til Parma og vorum reyna að vita hvert við áttum að fara, ældi krakkinn í bílinn..Konan brjálaðist og var næstum farin að grenja og gargaði eitthvað og gargaði.. svo stoppuðum við útí kanti til að reyna að þrifa eitthvað og þá kom eitthver frek hjóla kerling og öskraði eitthvað að við mættum ekki stoppa þarna og kellingin auðvitað öskraði eitthvað á móti.. jæja svo fórum við af stað aftur og vissum ekkert hvert við áttum að fara svo konan hringdi i þennan vin sem við vorum að fara að hitta og hann kom og fylgdi okkur.. svo þegar við vorum að finna okkur stæði, ældi krakkinn aftur í bílinn.. og þá í öll fötin sín svo hann þurfti að vera á brókinni í peysu af mömmu sinni.. svo tók okkur svona halftíma að finna stæði. Síðan löbbuðum við eitthvað um bara og skoðuðum krakka greyið í kerrunni á brókinni og það var skit kalt, svo fórum við nú a markað og fundum á hann buxur og peysu, sem tók samt klukkutíma.. settumst svo á kaffihús og svona, fórum svo bara í íbuðina til vinarins og borðuðum og svona.. svo lögðum við okkur meðan kallarnir fóru á tónlistarsafn eða eh.. og ætluðum svo á tónleika kl 5..en vorum of sein svo það var ekkert pláss, þá fórum við í eitthvað bíó hús að horfa á eh þingmann eða eitthvað tala.. á Ítölsku og það voru engin laus sæti svo við þurftum að standa.. eftir það eða einum eða einum og halfum klukkutima seinna lobbuðum við bara eitthvað um bæinn og svona.. svo fórum við aftur í íbúðina og þá var meðleigjandi hans kominn heim og hann var eh listamaður.. allt uti allskonar myndum og skúlptúrum og svona.. hann sýndi okkur allt það og svo fórum við af stað til baka um 9.. Mér leist mun betur á Parma heldur en Pavia, mikið snyrtilegra og svona, allavega það sem ég sá..
Í gær fórum við svo í eitthvern storkagarð, eða eitthvað þar sem storkar eru ræktaðir, ætluðum a eh barnaprógram sem var þar.. en vorum auðvitað of sein og misstum af þvi!.. svo við forum bara eh synis ferð með leiðsögumanni og ég nátturulega skildi ekki orð, en maður systir konunnar útskyrði smá fyrir mér svo nú veit ég mun meira um storka en ég hef ahuga á;) þegar við vorum buin að skoða allt þar.. og þau buin að taka alla mögulega bæklinga sem þau geta fengið ókeypis einsog allstaðar annarstaðar, fórum við á leikvöll svo krakkarnir gætu leikið sér, voru semsagt við og svo systirin, maðurinn hennar og dóttir og ein vinkona.. síðan fórum við bara heim og litla stelpan gisti hjá okkur..
En ég er núna bara búin að vera helvíti slöpp síðan á laugardaginn og er ekkert að lítast á það..
Þetta er allavega allt sem ég hef að segja í bili..
Thelma

...

19. mars 2009 klukkan 13:06
jæja síðan síðast er ég ekki mikið búin að gera.. bara rölta um og skoða meira..
er að hugleiða Milanó för, en er ekki viss, væri gaman.. en 1 dagur er svoldið litið eitthverstaðar þar sem maður þekkir sig ekkert til.. en hef enn tima til að hugleiða það..
síðustu 2-3 daga er veðrið buið að vera æði, lá bara í sólbaði í gær og hinn og gerði lítið annað, verst að þessi háhýsi hér skyggja svo fljótt á.. ekki get eg sagt samt að ég sé komin með neitt tan..
á laugardaginn förum við svo til Parma.. í heimsókn til eitthverra vina þeirra.. þannig maður sér eitthvað meira en Pavia..
Ég er svona farin að borða núna.. búin að venjast innbakaða grasinu þar sem ég er búin að fá það þrisvar nuna.. en þetta er mest allt pínt ofaní sig og slurkað niður með vatni;)
fer heim eftir 2 vikur.. mikið hvað það verður gott.. hlakkar mest til að hitta loksins fólk sem mér líkar við og er ekki snar bilað;) og þó stelpurnar séu nú frekar mun enginn af þeim nokkurntiman jafnast á við þessa konu, hehe:) líður samt einsog hálfvita að fara svona snemma heim, en ekki meika ég að vera lengur hjá þeim svo það er best að koma sér bara heim..
Svo skilst mér að verið sé að plana NY ferð í Okt, þegar kellan verður 20;) aldeilis veldi á manni svona í kreppunni.. mundi nú halda það..
en er komin langt út fyrir efnið, svo ég er hætt;)
Thelma

meira blogg..

15. mars 2009 klukkan 17:10
Jææja þá er það ákveðið að ég ætla heim í byrjun Apríl..
En ástæðan er að mér líkar ekki fjölskyldan og vil þá ekki pína mig til að vera hér, þar sem ég missti mikinn áhuga á þvi útaf þessu.. En mánuður er fínn, nóg hægt að gera á þeim tíma..
Hef mikið verið að skoða mig um og svona.. og svo náttúrulega passa, krakka sem er einn af mjöög fáum krökkum sem mer líkar ekki vel við.. hann þarf alltaf að skemma allt og vera að meiða alla, í gær ætlaði hann að henda í mig múrstein, og guð má vita hvað..
Amman og gamla fóru í gær, og netið kom inn hjá mér..en þá þurfti ég að flytja yfir í íbúðina á móti(eiga 2 á sama gangi) held ég búi með kallinum núna, er ekki enn farin að skilja mikið í þessu líferni þeirra, en ojæja..
Á fimmtudaginn fór ég niður í bæ með Martial i danstíma og svona, tókum strætóinn og ekkert mál:) svo lékum við okkur eitthvað hér.. og á föstudaginn náði ég í hann á leikskólann og við fórum heim og brösuðum eitthvað og fórum svo út að borða á eitthvern pitsu stað, aðeins skárri en síðast, skil samt ekki hvað allir eru að segja að ítalskar pítsur og pasta sé svona æðislegt, en reyndar kannski ekki mikið að marka mig;).. í gær fór ég smá rölt en veðrið var ekkert spes, konan bauð mér með í eitthvað barnaafmæli en mig langaði ekki mikið þangað..  í dag fór ég út um 11 og það var heldur skýað, en hlýtt og létti fljótt til.. ég labbaði bara eitthvða og var á labbinu i 5 klukkutíma og veðrið var mjög fint þó ég hafi verið eina manneskjan sem hætti sér úr peysunni.. en þessi ganga var líka farin að segja til sín og síðustu skrefin heim voru erfið, beinhimnubólga, hælsæri og fleira svona skemmtilegt:) en þetta var allavega hressandi, fór hinumeginn við ána og labbaði eitthvern stíg þar, sem fullt af fólki var í lautarferð og að grilla og eitthvað..
Þetta er allavega það sem eg hef verið að gera síðustu daga..í stuttu máli..
Langar reyndar að deila með ykkur einu sem ég fékk hér.. sem voru appelsínur, sykur, olía oooooog hvítlaukur.. erfitt að sjá þetta fyrir sér saman, en þetta var borðað af bestu lyst..

Thelma..

11. mars

11. mars 2009 klukkan 16:08
jæja vika frá þvi ég kom til Pavia..
Ekki mikið frá að segja, er bara búin að labba hér í endalausa hringi og skoða mig um, samt farin að rata alveg helling, fór niður í bæ í dag og hitti Jerome og við fengum okkur pitsu, varð fyrir miklum vonbrigðum og fannst hún ekkert spes.. Svo rölti ég bara meira um bæinn og skoðaði í búðir og búðarglugga.. þar sem mest allt er lokað milli 1 og hálf 4..
Angela og Martial eru eitthverstaðar í burtu og ég var ein í þessari íbúð í nótt, sem var ekkert spes tilfinning.. en Jerome og gömlu eru hinumeginn við ganginn.. en þau koma aftur í kvöld..
Það er búið að vera fínt veður núna síðustu 3 dagana.. reyndar mikill vindur í dag og allt rykið og sandurinn fýkur svo upp.. skil ekki að fólk hér er í úlpum og svona í 20 stiga hita, finnst það einum of..
ætla að reyna að finna hvort se ekki eitthver sundlaug hér svo ég hafi eitthvað að gera og geti kanski tanað smá;)

Mér líkar ekkert sérlega vel hér inná heimilinu, er ekki fjölskylda sem höfðar til mín held ég.. en ég er að gefa þessu séns og ætla að sjá til.. Hún sjálf hefur sent heim 2 aupair eftir stuttan tima.. svo henni gæti alveg eins ekki likað að hafa mig.. hún er búin að segja við mig eitthvað að þetta sé ekki einsog hún hafi hugsað sér.. svo það er ekki mjög þægilegt..

hef ekki meira að segja frá í bili
Thelma

Pavia

08. mars 2009 klukkan 17:46
Jæja þá er ég komin á net, er reyndar bara inni svefnherberginu hjá fólkinu núna.. en fæ svo örugglega þráðlaust bráðum.
Hef ekkert gert mjög mikið, fórum í bæjinn fyrsta daginn með strákinn í dansskóla og á meðan hann var þar fórum ég og mamman á kaffihús, svo röltum við að sjá skólann sem er risastór og einsog völundarhús, fórum ekki inn en þetta var mjög spes..
svo á föstudeginum fórum við með hann á leikskólann sem er bara í næsta húsi.. og ég sótti hann þangað síðan, eftir að ég tók smá göngu um hverfið og skoðaði mig um.. við lékum okkur bara og hann fór á eitthverja hjólaskauta og flaug um allar svalirnar og ég var skíthrædd um að hann mundi meiða sig;)
Í gær fórum við svo niðrí bæ og ég vissi ekkert hvað við vorum að fara að gera, hun sagði mér bara að við ættum að vera komnar eftir 20 min, og við fórum fyrir utan eitthvað stórt hús og þá var þetta eitthver fyrirlestur og sýning á sögu arkitekturs og auðvitað á Ítölsku.. svo ég get ekki sagt að það hafi verið hápunktur dagsinns;) en eftir það fórum við bara heim, og svo fór Angela með Martial til vina sinna sem eiga strak a sama aldri, kom svo heim að ná í eitthvað og sagði að við ætluðum að borða þar, en eg þyrfti ekki að koma með, en ég fór og svo kom í ljós að það var kanína í matinn:/ svo ekki borðaði ég mikið, nema salat og kartöflur..
Í dag talaði ég svo við mömmu (sem á afmæli í dag) og pabba og strákana heillengi og það var rosalega gott..  Heyrði líka aðeins í Heimi, svo fór ég bara út og labbaði helling að skoða mig um. er með myndir af þvi, en þér fara bara á facebook í bili, hef ekki tima til að setja þær hingað nuna..
ég er svona aðeins að venjast að vera hér, en veit ekki hvað ég verð lengi, sé það núna að ég er of mikill heimalingur fyrir svona:) og finnst bara best heima, þó smá flakk sé fínt, en kemur bara í ljós hvað ég endist og nenni:)
veit allavega núna að heima er langbest þó ég hafi verið farin að efast um það..

Allavega er þetta það sem ég hef að segja í bili:)
Thelma

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...